Alþýðusamband Íslands hefur komið á fót sérstakri aðgerðarstjórn með þátttöku landssambanda og stærstu félaga innan hreyfingarinnar.Tilgangurinn er að upplýsa og aðstoða aðildarsamtök ASÍ, trúnaðarmenn og samstarfsaðila á vinnumarkaði í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Meira..
Inn á heimasíðu ASÍ www.asi.is hafa verið settar ýmsar upplýsingar varðandi stöðu efnahagsmála. Þær má nálgast með því að smella hér.
Nálgast má upplýsingarefni og bæklinga á heimasíðu ASÍ eða með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.
Spurt og svarað í efnahagsþrengingunum - Í þessu riti sem skrifstofa ASÍ hefur tekið saman er reynt að draga saman á einfaldan hátt svör við helstu spurningum sem launafólk spyr um réttarstöðu sína, sparnað, eignir og skuldir.
Velferðarvaktin ætlað að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna.